Mikil mótmæli hafa verið í Danmörku eftir að myndir af spámanninum Múhammed voru birtar aftur í dönskum dagblöðum. Myndirnar voru endurbirtar eftir að þrír menn frá Túnis, voru handteknir vegna gruns um að hafa ætlað að myrða teiknara Jyllands - Posten, sem teiknaði eina myndina af spámanninum.
Mótmælendur hafa brugðið til þess ráðs að brenna allt sem hægt er að brenna og í raun allt sem

hefur orðið á vegi þessara glæpamanna hefur brunnið.
Mikill hiti er í innflytjendum í Danaveldi þessa dagana og í gær og í nótt loguðu eldar í Kaupmannahöfn og Árósum. Vitfirrt ungmenni hafa kveikt í ruslagámum, bílum og skólum, vegna þess eins að myndir af Múhammed voru birtar í fjölmiðlum. Furðulegt alveg!
Og nú síðast var kveikt í barnaheimili í Tilst, úthverfi Árósa í kvöld og að sögn lögreglu er hættan yfirstaðin og tveir piltar hafa verið handteknir. Búið er að slökkva eldinn sem aðeins eyðilagði lítinn hluta af barnaheimilinu.

Hegðun þessara múslima er til skammar. Þeir nota málfrelsi og tjáningarfrelsi sitt til að mótmæla mál og tjáningarfrelsi okkar! Ég verð bara að segja að mér finnst þetta stórmerkilegt.
Og síðan skilja þessir aðilar ekkert í því afhverju tveimur múslimum var vísað úr landi. Þeim finnst ekkert athugavert við það að þeir ætluðu sér að myrða þennan teiknara, það er ekkert pælt í því. Einungis er hugsað um sinn málstað og sínar trúarskoðanir. Ekki virðist skipta neinu máli að þeir eru ekki í sínu heimalandi, þeir eru í Danmörku þar sem öðruvísi sýn er á hlutunum. Tjáningarfrelsi er og önnur trúarbrögð eru í landinu. Hræsnin í þessu er svo mikil að maður er orðlaus.